Persónuvernd
Persónuverndarstefna
Síðast uppfært: nóvember 2026
1. Um okkur
Propads er íslenskt fyrirtæki stofnað af fótboltamönnum fyrir fótboltamenn. Markmið okkar er að verða fyrsta val íslenskra fótboltamanna. Við viljum vera hluti af hverjum leik.
2. Hvaða upplýsingar við söfnum
Til að klára pöntun þarftu að gefa upp nafn, heimilisfang, netfang og símanúmer. Kortaupplýsingar eru meðhöndlaðar af Teya og koma aldrei til okkar.
3. Hvernig við notum upplýsingarnar
Við notum gögnin þín til að afgreiða og senda pöntunina og til að svara fyrirspurnum. Við seljum aldrei persónuupplýsingar.
4. Þjónustuaðilar sem vinna fyrir okkur
Til að reka vefverslunina notum við eftirfarandi þjónustuaðila, sem fá aðeins þær upplýsingar sem þeir þurfa:
- Teya — greiðslumiðlun (kortaupplýsingar).
- Pósturinn — afhending pantana (nafn og heimilisfang).
- Sanity — geymsla pantana.
- Resend — sending staðfestingarpósta.
- Vercel — hýsing vefsins og heimsóknatölfræði án vafrakaka.
5. Vafrakökur og auglýsingar
Ef þú ýtir á „Samþykkja“ í kökuborðanum notum við Meta Pixel (Facebook/Instagram) til að mæla árangur auglýsinga. Ef þú ýtir á „Hafna“ eru engar upplýsingar sendar til Meta. Þú getur breytt valinu með því að hreinsa vafrakökur í vafranum þínum.
6. Kaupsaga
Kaupsaga viðskiptavinar er læst á öruggu svæði, eingöngu til að þjónusta viðskiptavin varðandi síðustu pöntun. Tími sem pöntun er geymd til uppflettingar eru 365 dagar.
7. Samband
Spurningar um persónuvernd:
propadspp@gmail.com